- "inspector": "# Að nota rýninn\n\nRýnirinn er viðmótið sem birtist hægra megin á síðunni þegar hlutur er \nvalinn, hann leyfir þér að breyta upplýsingum viðkomandi hlutar.\n\n### Velja tegund\n\nEftir að þú bætir við punkti, línu eða svæði, þá getur þú valið hverrar\ntegundar viðkomandi hlutur er, hvort það sé þjóðvegur eða húsagata, \nstórmarkaður eða kaffihús. Rýnirinn sýnir algengar tegundir og þú\ngetur fundið fleiri með því að slá inn í leitarboxið.\n\nSmelltu á 'i' neðst í hægra horni tegundartáknsins til að sjá meira um\nviðkomandi tegund. Smelltu á takka til að velja viðkomandi tegund.\n\n### Form og merkingar\n\nEftir að þú velur tegund, eða þegar þú velur hlut sem er þegar búið að \nvelja fyrir, þá mun rýnirinn sýna svæði með merkingum, til dæmis \nnafn fyrirtæki og heimilisfang.\n\nFyrir neðan svæðin sérðu lítil tákn, þú getur smellt á þau til að bæta\nvið frekari upplýsingum, til dæmis tengli á upplýsingar um hlutinn á\n[Wikipediu](http://www.wikipedia.org/), upplýsingar um aðgengi fatlaðra\nog fleira.\n\nNeðst í rýninum geturðu smellt á 'Fleiri merkingar' til að bæta við \nöðrum merkingum. [Taginfo](http://taginfo.openstreetmap.org/) er góður\nstaður til að kynna sér algengar merkingar.\n\nBreytingar sem þú gerir í rýninum taka þegar gildi á kortinu.\nÞú getur afturkallað þær með því að ýta á 'Hætta við' takkann.\n\n### Loka rýninum\n\nÞú getur lokað rýninum með því að smella á x-ið efst til hægri, \nmeð því að ýta á 'Escape' á lyklaborðinu eða smella bara á kortið.\n",