- "gps": "# GPS\n\nGPS gögn eru þau sem þykja öruggust á OpenStreetMap. Þessi ritill\nstyður staðværa ferla - '.gpx' skrár á tölvu þinni. Þú getur safnað\nþess háttar staðværum ferlum með ýmsum snjallsímaforritum sem og \nöðrum GPS-tækjum.\n\nHægt er að lesa sér til um þetta á \n[Surveying with a GPS](http://learnosm.org/en/beginner/using-gps/).\n\nTil að nota GPX-slóð við kortagerð, veldu þá GPX skrána og dragðu inn\ná kortaritilinn. Ef ritillinn þekkir skrána þá bætist ferillinn við sem \nskærgræn lína. Smelltu á 'Bakgrunnsstillingar' valkostina vinstra megin\ntil að slökkva á eða þysja inn á þetta nýja GPX-lag.\n\nGPX-ferillinn er ekki sendur beint inn á OpenStreetMap - besta leiðin \ntil að nota hann er að draga eftir honum á kortinu fyrir það sem þú \nvilt bæta við.\n",
- "imagery": "# Loftmyndir\n\nLoftmyndir eru mikilvægt tól við kortagerð. Samblöndu af\nmyndum teknum af flugvélum, gervihnöttum og öðrum aðferðum\ner hægt að sjá í ritlinum undir 'Bakgrunnsstillingar' til vinstri.\n\nSjálfgefin stilling er að sýna [Bing Maps](http://www.bing.com/maps/) \ngervihnattamynd í ritlinum, en þegar þú færir þig til á kortinu\ngeta aðrar gagnalindir bæst við. Sum lönd, til dæmis Bandaríkin,\nFrakkland og Danmörk, eru með mikið safn loftmynda fyrir sum svæði.\n\nLoftmyndir eru stundum hliðraðar frá kortagögnum vegna mistaka\nhjá þeim sem útvega loftmyndir. Ef þú sérð að margir vegir stangast\ná við loftmyndina, ekki færa þá alla svo þeir passi við \nloftmyndina, þess í stað geturðu fært loftmyndina til svo hún \nstemmi við núverandi gögn. Þú smellir þá á 'Laga hliðrun' neðst\ná bakgrunnsstillingavalmyndinni.\n",