+ "key": "H",
+ "help": {
+ "title": "Hjálp",
+ "welcome": "Velkomin í iD ritilinn fyrir [OpenStreetMap](https://www.openstreetmap.org/). Með þessum ritli geturðu uppfært OpenStreetMap beint úr vafranum þínum.",
+ "open_data_h": "Opin gögn",
+ "open_data": "Breytigar sem þú gerir á þessu korti verða sýnilegar öllum þeim sem nota OpenStreetMap. Breytingarnar þínar geta byggst á persónulegri þekkingu, mælingum á staðnum, eða myndefni sem safnað er úr loftmyndum eða myndum teknum í götuhæð. Afritun úr höfundarréttarvörðu efni eins og Google Maps, [er stranglega bannað](https://www.openstreetmap.org/copyright).",
+ "before_start_h": "Áður en þú byrjar",
+ "before_start": "Þú þyrftir að vera kunnug(ur) OpenStreetMap og þessum ritli áður en þú hefst handa við breytingar. iD kemur með skref-fyrir-skref leiðarvísi sem getur kennt þér grunnatriði við breytingar á OpenStreetMap. Smelltu á \"Skoða leiðarvísi\" á þessum skjá til að fara í kennsluna - þetta tekur einungis um 15 mínútur.",
+ "open_source_h": "Opinn hugbúnaður",
+ "open_source": "iD ritillinn er samstarfsverkefni um opinn og frjálsan hugbúnað, og ert þú að nota núna útgáfu {version}. Grunnkóðinn er til taks [á GitHub](https://github.com/openstreetmap/iD).",
+ "open_source_help": "Þú getur hjálpað iD með því að [þýða](https://github.com/openstreetmap/iD/blob/master/CONTRIBUTING.md#translating) hann eða með því að [tilkynna villur](https://github.com/openstreetmap/iD/issues)."
+ },
+ "overview": {
+ "title": "Yfirlit",
+ "navigation_h": "Leiðsögn",
+ "navigation_drag": "Þú getur dregið til kortið með því að ýta á og halda niðri {leftclick} vinstri músarhnappnum og færa síðan til músarbendilinn. Þú getur líka notað `↓`, `↑`, `←`, `→` örvalyklana á lyklaborðinu þínu.",
+ "navigation_zoom": "Þú getur rennt inn eða út á kortinu með því að skruna með músarhjólinu eða snertiplatta, eða með því að smella á {plus} / {minus} hnappana við hlið kortsins. Þú getur líka notað `+`, `-` lyklana á lyklaborðinu þínu.",
+ "features_h": "Fitjur á korti",
+ "features": "Við notum orðin *fitjur* og *eigindi* til að lýsa atriðum sem birtast á kortinu, svo sem vegum, byggingum eða áhugaverðum stöðum. Hvað sem er í raunheimi er hægt að tákna með fitjum/eigindum í OpenStreetMap. Fitjur á korti eru birtar með því að nota *punkta*, *línur*, eða *svæði*.",
+ "nodes_ways": "Í OpenStreetMap eru punktar stundum kallaðir *hnútar*, eins eru línur og svæði stundum kölluð *leiðir*."
+ },
+ "editing": {
+ "title": "Breytingar og vistun",
+ "select_h": "Velja",
+ "select_left_click": "{leftclick} Vinstri-smelltu á fitju til að velja hana. Það mun áherslulita hana með púlsandi ljóma jafnframt því að hliðarspjaldið mun birta allar helstu upplýsingar um þessa fitju, svo sem eins og heiti hennar og heimilisfang/staðsetningu.",
+ "select_right_click": "{rightclick} Hægri-smelltu á fitju til að birta breytingavalmyndina, sem sýnir hvaða skipanir eru tiltækar, svo sem snúningur, tilfærsla og eyðing.",
+ "multiselect_h": "Velja margt",
+ "multiselect_shift_click": "`{shift}`+{leftclick} vinstri-smelltu til að velja margar fitjur saman. Þetta auðveldar að færa eða eyða mörgum atriðum.",
+ "multiselect_lasso": "Önnur leið til að velja margar fitjur er að halda niðri `{shift}` lyklinum, síðan ýta á og halda niðri {leftclick} vinstri músarhnappnum og draga músarbendilinn til að teikna valsvæði. Allir punktar innan valsvæðisins verða þá valdir.",
+ "undo_redo_h": "Afturkalla og endurtaka",
+ "undo_redo": "Breytingarnar eru geymdar staðvært í vafranum þínum þangað til þú velur að vista þær inn á OpenStreetMap-vefþjóninn. Þú getur afturkallað breytingar með því að smella á {undo} **Afturkalla** hnappinn, og endurtekið þær með því að smella á {redo} **Endurtaka** hnappinn.",
+ "save_h": "Vista",
+ "save": "Smelltu á {save} **Vista** til að ljúka breytingunum þínum og senda þær inn á OpenStreetMap. Þú ættir að muna eftir að vista reglulega vinnuna þína!",
+ "save_validation": "Á vistunarskjánum hefurðu tækifæri til að yfirfara það sem þú ert búin(n) að gera. iD framkvæmir einnig nokkrar grunnathuganir á hvort gögn vanti og gæti boðið upp á hjálpsamlegar tillögur og aðvaranir ef eitthvað virðist ekki vera í lagi.",
+ "upload_h": "Senda inn",
+ "upload": "Áður en þú sendir breytingarnar þínar inn verðurðu að skrifa [athugasemd með breytingasettinu](https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Good_changeset_comments). Síðan smellirðu á **Senda inn** svo að breytingarnar fari inn í OpenStreetMap, þar sem þær verða samtvinnaðar inn í kortið og verða sýnilegar öllum sem nota það.",
+ "backups_h": "Sjálfvirk öryggisafritun",
+ "backups": "Ef þú getur ekki lokið öllum breytingunum þínum í einni setu, til dæmis ef tölvan þín hrynur eða ef þú lokaðir óvart flipanum í vafranum, verða breytingarnar þínar eftir sem áður vistðar í geymsluminni vafrans. Þú getur komið aftur síðar (í sama vafra á sömu tölvu), og mun iD þá bjóðast til að endurheimta vinnuna þína.",
+ "keyboard_h": "Flýtilyklar",
+ "keyboard": "Þú getur skoðað lista yfir flýtileiðir á lyklaborði með því að ýta á `?` lykilinn."
+ },
+ "feature_editor": {
+ "title": "Fitjuritill",
+ "intro": "*Fitjuritillinn* birtist við hlið kortsins og gerir þér kleift að skoða og vinna með allar upplýsingar tengdar valinni fitju.",
+ "definitions": "Efsti hlutinn birtir gerð fitjunnar. Miðhlutinn inniheldur *gagnasvið* sem sýna eigindi fitjunnar, svo sem eins og heiti hennar og heimilisfang/staðsetningu.",
+ "type_h": "Gerð fitju",
+ "type": "Þú getur smellt á gerð fitjunnar til að breyta henni í einhverja aðra tegund. Öllu sem til er í raunheimum á að vera hægt að bæta inn í OpenStreetMap, þannig að það eru þúsundir mismunandi eiginda sem hægt er að velja úr.",
+ "type_picker": "Tegundavalið birtir algengustu gerðir eiginda, svo sem garða, sjúkrahús, veitingastaði, vegi og byggingar. Þú getur leitað að hverju sem er með því að skrifa inn í leitarreitinn. Þú getur líka smellt á {inspect} **upplýsinga** táknmyndina næst fitjutegundinni til að fræðast meira um hana.",
+ "fields_h": "Gagnasvið",
+ "fields_all_fields": "Hlutinn \"Öll gagnasvið\" inniheldur öll þau eigindi fitju sem þú getur breytt. Í OpenStreetMap eru öll gagnasviðin valkvæð, og það er í góðu lagi að skilja gagnasvið eftir autt ef þú ert ekki viss.",
+ "fields_example": "Hver gerð fitju mun birta mismunandi gagnasvið. Sem dæmi má nefna að gata mun birta svið fyrir vegyfirborð og hraðatakmarkanir, en veitingastaður mun aftur birta svið fyrir hvaða tegundir matar þar fást og á hvaða tímum hann er opinn.",
+ "fields_add_field": "Þú getur líka smellt á \"Bæta við gagnasviði\" fellilistann til að bæta við fleiri sviðum, svo sem lýsingu, Wikipedia-tengli, hjólastólaaðgangi, og fleiru.",
+ "tags_h": "Merki",
+ "tags_all_tags": "Fyrir neðan hlutann með gagnasviðunum, er annar hluti með heitinu \"Öll merki\" sem þú getur flett út til að vinna með hvert einasta OpenStreetMap *merki* fyrir valda fitju. Hvert merki samanstendur af *lykill* (key) og *gildi* (value), gagnaeinindum sem skilgreina öll eigindi/fitjur sem geymd eru í OpenStreetMap.",
+ "tags_resources": "Breytingar á merkjum eiginda/fitja krefst nokkurrar þekkingar á OpenStreetMap. Þú ættir að fletta upp í heimildum á borð við [wiki-síður OpenStreetMap](https://wiki.openstreetmap.org/wiki/Main_Page) eða [Taginfo](https://taginfo.openstreetmap.org/) til að vita meira um ásættanlegar aðferðir við merkingar í OpenStreetMap."
+ },
+ "points": {
+ "title": "Punktar",
+ "intro": "Punktar geta táknað hluti eins og verslanir, veitingahús og minnismerki. Þeir merkja ákveðinn stað og lýsa því hvað er þar.",
+ "add_point_h": "Bæta við punktum",
+ "add_point": "Til að bæta við punkti, smelltu á {point} **Punktur** hnappinn á verkfærastikunni fyrir ofan kortið, eða ýttu á flýtilykilinn `1`. Þá breytist músarbendillinn í krossmið.",
+ "add_point_finish": "Til að setja nýjan punkt á kortið, staðsettu þá músarbendilinn þar sem punkturinn á að vera, síðan skaltu {leftclick} vinstri-smella eða ýta á `Bilslá`.",
+ "move_point_h": "Færa punkta",
+ "move_point": "Til að færa punkt, staðsettu þá músarbendilinn yfir punktinum, ýttu og haltu niðri {leftclick} vinstri músarhnappnum á meðan punkturinn er dreginn yfir á nýju staðsetninguna.",
+ "delete_point_h": "Eyða punktum",
+ "delete_point": "IÞað er í góðu lagi að eyða fitjum sem ekki eru til í raunheimum. Eyðing fitju úr OpenStreetMap fjarlægir hana af kortinu sem allir nota, þannig að þú ættir að ganga tryggilega úr skugga um að hún sé raunverulega horfin áður en þú eyðir henni.",
+ "delete_point_command": "Til að eyða punkti, {rightclick} hægri-smelltu á punktinn til að velja hann og birta í leiðinni breytingavalmyndina, notaðu síðan {delete} **Eyða** skipunina."
+ },
+ "lines": {
+ "title": "Línur",
+ "intro": "*Línur* eru notaðar til að tákna fyrirbæri eins og vegi, lestarteina og árfarvegi. Línur ætti að teikna eftir miðju þeirra fyrirbæra sem þær tákna.",
+ "add_line_h": "Bæta við línum",
+ "add_line": "Til að bæta við línu, smelltu á {line} **Lína** hnappinn á verkfærastikunni fyrir ofan kortið, eða ýttu á flýtilykilinn `2`. Þá breytist músarbendillinn í krossmið.",
+ "add_line_draw": "Næst skaltu setja bendilinn þar sem línan ætti að byrja og {leftclick} vinstri-smella eða ýta á `Bilslá` til að fara að setja hnúta eftir línunni. Haltu áfram að setja fleiri hnúta með því að smella eða ýta á `Bilslá`. Á meðan þessu stendur, geturðu breytt aðdrættinum eða dregið til kortið til að geta bætt við fleiri atriðum.",
+ "add_line_finish": "Til að ljúka línu, ýttu á `{return}` eða smelltu aftur á síðasta hnútinn.",
+ "modify_line_h": "Breyta línum",
+ "modify_line_dragnode": "Oft muntu sjá línur sem ekki eru formaðar rétt, til dæmis vegi sem ekki falla saman við veginn eins og hann er á bakgrunnsmynd. Til að laga lögun línu, {leftclick} vinstri-smelltu fyrst á hana til að velja hana. Allir hnútar línunnar breytast í litla hringi. Þá geturðu dregið hnútana til á betri staðsetningar.",
+ "modify_line_addnode": "Þú getur líka búið til nýja hnúta á línuna annað hvort með því að {leftclick}**x2** tvísmella á línuna eða með því að draga til litlu þríhyrningana nálægt miðju milli hnúta.",
+ "connect_line_h": "Tengja línur",
+ "connect_line": "Að tengja vegi rétt er mjög mikilvægt fyrir kortið og algerlega nauðsynlegt til að geta gefið akstursleiðsögn.",
+ "connect_line_display": "Tengingar milli vega eru táknaðar með gráum hringjum. Endapunktar línu eru teiknaðir með stærri hvítum hringjum ef þeir tengjast ekki í neitt.",
+ "connect_line_drag": "Til að tengja línu í aðra fitju, dragðu þá einn af hnútum hennar yfir á hina fitjuna þar til fitjurnar smella saman. Ábending: Þú getur haldið niðri `{alt}` lyklinum til að hindra fitjur í því að tengjast við aðrar fitjur.",
+ "connect_line_tag": "Ef þú veist að tengingin sé með umferðarljós eða gangbrautir, geturðu bætt þessum atriðum við með því að velja tengihnútinn og nota fitjuritilinn til að velja rétt eigindi.",
+ "disconnect_line_h": "Aftengja línur",
+ "disconnect_line_command": "Til að aftengja veg frá annari fitju, {rightclick} hægri-smelltu á tengihnútinn og veldu {disconnect} **Aftengja** skipunina úr breytingavalmyndinni.",
+ "move_line_h": "Færa línur",
+ "move_line_command": "Til að færa heila línu, {rightclick} hægri-smelltu á línuna og veldu {move} **Færa** skipunina úr breytingavalmyndinni. Færðu síðan bendilinn á réttan stað og {leftclick} vinstri-smelltu til að koma línunni fyrir á nýja staðnum.",
+ "move_line_connected": "Línur sem eru tengdar við aðrar línur munu haldast tengdar eftir að hafa verið færðar á nýjan stað. iD gæti komið í veg fyrir að þú færir tengda línu yfir aðra tengda línu.",
+ "delete_line_h": "Eyða línum",
+ "delete_line": "Ef lína er algerlega röng, til dæmis vegur sem ekki er lengur til staðar í raunheimum, er í góðu lagi að eyða honum. En farðu varlega við að eyða fitjum: bakgrunnsmyndirnar sem þú ert að nota gætu verið úreldar og vegurinn sem lítur út fyrir að vera rangur, gæti einfaldlega verið nýbyggður.",
+ "delete_line_command": "Til að eyða línu, {rightclick} hægri-smelltu á línuna til að velja hana og birta í leiðinni breytingavalmyndina, notaðu síðan {delete} **Eyða** skipunina."
+ },
+ "areas": {
+ "title": "Svæði",
+ "intro": "*Svæði* eru notuð til að sýna jaðra á fitjum eins og vötnum, byggingum og íbúðahverfum. Svæði á að teikna í kringum útjaðar fyrirbæranna sem þau tákna, til dæmis við útlínur á grunni byggingar.",
+ "point_or_area_h": "Punktar eða svæði?",
+ "point_or_area": "Mörg fyrirbæri er hægt að tákna bæði sem punkt eða sem svæði. Meginreglan er að teikna byggingar og lóðir sem svæði þegar það er mögulegt. Settu síðan punkta inn í svæði byggingar til að tákna fyrirtæki, aðstöðu og annað slíkt sem staðsett er inni í byggingunni.",
+ "add_area_h": "Bæta við svæðum",
+ "add_area_command": "Til að bæta við cvæði, smelltu á {area} **Svæði** hnappinn á verkfærastikunni fyrir ofan kortið, eða ýttu á flýtilykilinn `3`. Þá breytist músarbendillinn í krossmið.",
+ "add_area_draw": "Næst skaltu setja bendilinn á eitt horn fitjunnar og {leftclick} vinstri-smella eða ýta á `Bilslá` til að fara að setja hnúta eftir útjaðri svæðisins. Haltu áfram að setja fleiri hnúta með því að smella eða ýta á `Bilslá`. Á meðan þessu stendur, geturðu breytt aðdrættinum eða dregið til kortið til að geta bætt við fleiri atriðum.",
+ "add_area_finish": "Til að ljúka svæði, ýttu á `{return}` eða smelltu aftur á annað hvort fyrsta eða síðasta hnútinn.",
+ "square_area_h": "Rétt horn",
+ "square_area_command": "Margar fitjur svæða eins og t.d. byggingar eru með köntuð horn. Til að gera horn svæðis köntuð, {rightclick} hægri-smelltu á tengihnútinn og veldu {orthogonalize} **Hornrétta** skipunina úr breytingavalmyndinni.",
+ "modify_area_h": "Breyta svæðum",
+ "modify_area_dragnode": "Oft muntu sjá svæði sem ekki eru formuð rétt, til dæmis byggingar sem ekki falla saman við bygginguna eins og hún er á bakgrunnsmynd. Til að laga lögun svæðis, {leftclick} vinstri-smelltu fyrst á hana til að velja það. Allir hnútar svæðisins breytast í litla hringi. Þá geturðu dregið hnútana til á betri staðsetningar.",
+ "modify_area_addnode": "Þú getur líka búið til nýja hnúta meðfram svæði annað hvort með því að {leftclick}**x2** tvísmella á svæðið eða með því að draga til litlu þríhyrningana nálægt miðju milli hnúta.",
+ "delete_area_h": "Eyða svæðum",
+ "delete_area": "Ef svæði er algerlega rangt, til dæmis bygging sem ekki er lengur til staðar í raunheimum, er í góðu lagi að eyða henni. En farðu varlega við að eyða fitjum: bakgrunnsmyndirnar sem þú ert að nota gætu verið úreltar og byggingin sem lítur út fyrir að vera röng, gæti einfaldlega verið nýbyggð.",
+ "delete_area_command": "Til að eyða svæði, {rightclick} hægri-smelltu á svæðið til að velja það og birta í leiðinni breytingavalmyndina, notaðu síðan {delete} **Eyða** skipunina."
+ },
+ "relations": {
+ "title": "Vensl",
+ "intro": "*Vensl* (relation) er sérstök tegund eiginda í OpenStreetMap sem hópar saman önnur eigindi/fitjur. Fitjur eða eigindi sem tilheyra venslum kallast *meðlimir* (members), og getur hver meðlimur haft *hlutverk* (role) í venslunum.",
+ "edit_relation_h": "Breytingar á venslum",
+ "edit_relation": "Neðst í fitjuritlinum geturðu flett út hlutanum \"Öll vensl\" til að sjá hvort valin fitja sé meðlimur í einhverjum venslum. Þú getur svo smellt á venslin til að velja þau og breyta þeim.",
+ "edit_relation_add": "Til að bæta fitju við vensl, veldu þá fitjuna, smelltu síðan á {plus} plúshnappinn í \"Öll vensl\" hluta fitjuritilsins. Þú getur þá valið úr lista yfir nálæg vensl eða farið á valkostinn \"Ný vensl...\".",
+ "edit_relation_delete": "Þú getur einnig smellt á {delete} **Eyða** hnappin til að fjarlægja völdu fitjuna úr venslunum. Ef þú fjarlægir alla meðlimi úr venslum, verður þeim venslum eytt sjálfvirkt.",
+ "maintain_relation_h": "Viðhalda venslum",
+ "maintain_relation": "Oftast nær mun iD viðhalda venslum um leið og þú sýslar með breytingar. Þú ættir að fara varlega þegar þú ert að skipta út fitjum sem gætu verið meðlimir í venslum. Til dæmis ef þú eyðir vegbút og teiknar nýjan veghluta í stað hans, ættirðu að bæta nýja veghlutanum í sömu vensl (vegir, beygjutakmarkanir, o.s.frv.) eins og upprunalegi vegurinn hafði.",
+ "relation_types_h": "Tegundir vensla",
+ "multipolygon_h": "Fjölhyrningar (Flákar)",
+ "multipolygon": "Venslin *fjölhyrningur* er hópur af einni eða fleiri *ytri* fitjum og einni eða fleiri *innri* fitjum. Ytri fitjurnar skilgreina útjaðra fjölhyrningsins og innri fitjurnar skilgreina undirsvæði eða holur sem skornar eru út úr innri fleti fjölhyrningsins.",
+ "multipolygon_create": "Til að búa til fjölhyrning, til dæmis byggingu með inngarði, teiknaðu þá útjaðarinn sem svæði og svo innri jaðrana sem línu eða annarskonar svæði. Síðan skaltu nota `{shift}`+{leftclick} vinstri-smell til að velja báðar fitjurnar, {rightclick} hægri-smella til að birta breytingavalmyndina, og velja síðan {merge} **Sameina** skipunina.",
+ "multipolygon_merge": "Sameining nokkurra lína eða svæða mun útbúa ný fjölhyrningsvensl með öll valin svæði sem meðlimi. iD mun velja innri og ytri hlutverkin sjálfvirkt, byggt á því hvaða fitjur eru innan í öðrum fitjum.",
+ "turn_restriction_h": "Takmarkanir á beygjum",
+ "turn_restriction": "Venslin *takmörkun á beygjum* er hópur nokkurra vegbúta á vegamótum. Takmarkanir á beygjum samanstanda af *frá* (from) vegi, *gegnum* (via) hnút eða vegi, og *til* (to) vegar.",
+ "turn_restriction_field": "Til að breyta beygjutakmörkunum, veldu þá tengihnút þar sem tveir eða fleiri vegir mætast. Fitjuritillinn mun birta sérstakt \"Takmarkanir á beygjum\" gagnasvið sem sýnir líkan af gatnamótunum.",
+ "turn_restriction_editing": "Í gagnasviðinu \"Takmarkanir á beygjum\", smelltu til að velja \"frá\" (from) veg, og skoðaðu hvort beygjur séu leyfðar eða takmarkaðar við einhverja af \"til\" (to) vegina. Þú getur smellt á beygjutáknin til að víxla þeim á milli leyft og takmarkað. iD mun útbúa venslin sjálfvirkt og stilla hlutverkin 'frá', 'gegnum', og 'til' eftir því sem þú hefur valið.",
+ "route_h": "Leiðir",
+ "route": "Venslin *leið* er hópur einnar eða fleiri fitja sem saman mynda leiðakerfi, svo sem eins og strætisvagnaleið, gönguleið eða þjóðveg.",
+ "route_add": "Til að bæta fitju við leiðavensl, veldu þá fitjuna og skrunaðu niður í hlutann \"Öll vensl\" í fitjuritlinum, smelltu síðan á {plus} plúshnappinn til að bæta þessari fitju við einhver nærliggjandi vensl eða í ný vensl.",
+ "boundary_h": "Svæðamörk",
+ "boundary": "Venslin *svæðamörk* er hópur einnar eða fleiri línufitja sem saman mynda stjórnsýslutengd mörk svæða.",
+ "boundary_add": "Til að bæta fitju við svæðamarkavensl, veldu þá fitjuna og skrunaðu niður í hlutann \"Öll vensl\" í fitjuritlinum, smelltu síðan á {plus} plúshnappinn til að bæta þessari fitju við einhver nærliggjandi vensl eða í ný vensl."
+ },
+ "imagery": {
+ "title": "Bakgrunnsmyndir",
+ "intro": "Bakgrunnsmyndefnið sem birtist fyrir aftan kortagögnin er mikilvæg tilföng í kortagerð. Þetta geta verið loftmyndir teknar af gervitunglum, flugvélum eða drónum, nú eða söguleg landakort eða önnur tiltæk gögn.",
+ "sources_h": "Uppruni myndefnis",
+ "choosing": "Til að sjá hvaða myndabankar eru tiltækir til að nota við vinnsluna, smelltu á hnappinn {layers} **Bakgrunnsstillingar** við hlið kortsins.",
+ "sources": "Sjálfgefið er [Bing Maps](https://www.bing.com/maps/) gervihnattalag valið sem bakgrunnsmynd. Það fer eftir því hvar þú ert að vinna hvort aðrir myndabankar séu tiltækir. Sumir þeirra gætu verið með nýrri myndir eða í betri upplausn, þannig að það getur borgað sig að athuga hvaða myndalag sé best til að nota sem viðmiðun í kortagerðinni.",
+ "offsets_h": "Laga hliðrun mynda",
+ "offset": "Mynsednið er einstaka sinnum örlítið hliðrað miðað við nákvæm kortagögnin. Ef þú sérð að margar byggingar og vegir liggja til hliðar við það sem sést á bakgrunnsmyndunum, þá gæti verið að myndirnar séu ekki rétt stilltar og þá ættir þú alls ekki að færa til fitjurnar svo þær passi við bakgrunninn. Í staðinn geturðu lagað bakgrunninn þannig að hann passi sem best við fyrirliggjandi gögn með því að fara í \"Laga hliðrun mynda\" neðst í bakgrunnsstillingaspjaldinu.",
+ "offset_change": "Smelltu á litlu þríhyrningana til að laga hliðrun mynda í litlum þrepum, eða haltu niðri vinstri músarhnappnum og dragðu til innan í gráa ferhyrningnum til að renna myndinni á réttan stað."
+ },
+ "streetlevel": {
+ "title": "Ljósmyndir í götuhæð",
+ "intro": "Ljósmyndir teknar í götuhæð nýtast vel við að setja inn upplýsingar um umferðarmerki, fyrirtæki og önnur fyrirbæri sem ekki er gott að átta sig á af gervihnattamyndum og loftmyndum. iD ritillinn styður ljósmyndir í götuhæð frá [Mapillary](https://www.mapillary.com) og [OpenStreetCam](https://www.openstreetcam.org).",
+ "using_h": "Nota ljósmyndir í götuhæð",
+ "using": "Til að nota ljósmyndir í götuhæð við kortagerð, smelltu á spjaldið {data} **Kortagögn** við hlið kortsins til að virkja tiltæk myndalög eða gera þau óvirk.",
+ "photos": "Þegar það er virkt, sýnir myndalag línu meðfram myndarununni. Við hærri aðdráttarstig merkir hringur staðsetningu hverrar myndar, og við enn hærri aðdráttarstig birtist keila sem sýnir stefnuna sem myndavélinni var beint í þegar myndin var tekin.",
+ "viewer": "Þegar þú smellir á staðsetningu einhverrar myndar, birtist myndaskoðari í neðri hluta kortsins. Myndaskoðarinn er með stýringar til að hægt sé að fara áfram og afturábak í myndarununni. Hann sýnir einnig notandanafn þess sem tók myndina, tökudagsetningu, og einnig tengil sem hægt er að fylgja til að skoða myndina á upprunalegu vefsvæði."
+ },
+ "gps": {
+ "title": "GPS-ferlar",
+ "intro": "Söfnun GPS-ferla er mikilvægur þáttur í þeim gögnum sem notuð eru í OpenStreetMap. Þessi ritill styður notkun á *.gpx*, *.geojson* og *.kml* files af tölvunni þinni. Þú getur safnað GPS-ferlum með snjallsíma, íþróttaúri eða öðrum GPS-tækjum.",
+ "survey": "Til að skoða upplýsingar um hvernig framkvæma eigi GPS-mælingar, lestu [Kortagerð með snjallsíma, GPS eða pappír](http://learnosm.org/en/mobile-mapping/).",
+ "using_h": "Nota GPS-ferla",
+ "using": "Til að nota GPS-feril til kortagerðar, dragðu og slepptu gagnaskrána yfir í kortaritilinn. Ef hún er metin gild, verður ferillinn teiknaður á kortið með ljósfjólublárri línu. Smelltu á {data} **Kortagögn** spjaldið við hlið kortsins til að virkja, gera óvirkt eða renna inn að GPS-gögnunum þínum.",
+ "tracing": "GPS-ferillinn er ekki sendur til OpenStreetMap - besta leiðin til að nota hann er við teikningu á kortið, nota hann til stuðnungs við fitjur eða eigindi sem þú setur inn.",
+ "upload": "Þú getur líka [sent GPS-gögnin þín inn á OpenStreetMap](https://www.openstreetmap.org/trace/create) svo að aðrir notendur geti stuðst við þau."
+ },
+ "field": {
+ "restrictions": {
+ "title": "Hjálp fyrir takmarkanir á beygjum",
+ "about": {
+ "title": "Um",
+ "about": "Þessi reitur gerir þér kleift að yfirfara og breyta takmörkunum á beygjum. Hann birtir líkan af völdum gatnamótum ásamt nálægum tengdum vegum.",
+ "from_via_to": "Takmörkun á beygju inniheldur alltaf: eina **FRÁ leið**, eina **TIL leið**, og annað hvort einn **Í GEGNUM hnút** eða eina eða fleiri **Í GEGNUM leiðir**.",
+ "maxdist": "Sleðinn \"{distField}\" stýrir hve langt eigi að leita að tengdum vegum í viðbót.",
+ "maxvia": "Sleðinn \"{viaField}\" stýrir hve margar gegnumstreymisleiðir eigi að hafa með í leitinni. (Ábending: einfalt er betra)"
+ },
+ "inspecting": {
+ "title": "Yfirferð",
+ "about": "Láttu bendilinn svífa yfir einhverjum **FRÁ** bút til að skoða hvort hann sé með nokkrar takmarkanir á beygjum. Allir mögulegir **TIL** úttakspunktar verða teiknaðir með litaðri skyggingu til að sýna hvort takmörkun sé fyrir hendi.",
+ "from_shadow": "{fromShadow} **FRÁ bútur**",
+ "allow_shadow": "{allowShadow} **TIL leyft**",
+ "restrict_shadow": "{restrictShadow} **TIL takmarkað**",
+ "only_shadow": "{onlyShadow} **TIL einungis**",
+ "restricted": "\"Takmarkað\" þýðir að þar er takmörkun á beygjum, til dæmis \"Ekki vinstri beygja\".",
+ "only": "\"Einungis\" þýðir að farartæki á þessari leið getur einungis valið þessa leið, til dæmis \"Einungis beint áfram\"."
+ },
+ "modifying": {
+ "title": "Breytingar",
+ "about": "Til að breyta takmörkunum á beygjum, smelltu þá fyrst á einhvern upphafs-**FRÁ** bút til að velja hann. Valdi búturinn mun sýnast slá í púls, og allir mögulegir **TIL** úttakspunktar munu birtast sem beygjutákn.",
+ "indicators": "Síðan geturðu smellt á beygjutákn til að víxla því á milli \"Leyft\", \"Takmarkað\" og \"Einungis\".",
+ "allow_turn": "{allowTurn} **TIL leyft**",
+ "restrict_turn": "{restrictTurn} **TIL takmarkað**",
+ "only_turn": "{onlyTurn} **TIL einungis**"
+ },
+ "tips": {
+ "title": "Ábendingar",
+ "simple": "**Kjóstu einfaldar takmarkanir fram yfir flóknar.**",
+ "simple_example": "Sem dæmi, forðastu að útbúa gegnumstreymisleið ef hægt er að komast af með einfaldari takmörkun á beygju með 'í gegnum'-hnúti.",
+ "indirect": "**Sumar takmarkanir eru birtar með textanum \"(óbeint)\" og eru teiknaðar ljósari.**",
+ "indirect_example": "Slíkar takmarkanir eru til staðar vegna annarra takmarkana í grenndinni. Til dæmis mun \"Einungis beint áfram\" takmörkun útbúa óbeint aðrar \"Ekki beygja\" takmarkanir fyrir allar aðrar leiðir í gegnum gatnamótin.",
+ "indirect_noedit": "Þú getur ekki breytt óbeinum takmörkunum. Í staðinn þarftu að breyta öðrum nálægum takmörkunum."
+ }
+ }
+ }